29ágúst

Sjæseee

æjæjæj. Ekki nógu gott í þetta skiptið. Myndasvæðið mitt er ekki alveg að gera góða hluti þessa daganna. Það er búið að loka tímabundið fyrir myndasvæðið mitt :/ Annars er ég alveg að skemmta mér konunglega hérna á Hawaii núna. Loksins komu mamma mín og pabbi. Var alveg þvílíkt ánægð að sjá þau. Ég og Stella fórum og sóttum þau niðrá völl. Skrítið að hitta foreldra sína eftir svona langan tíma. Enda var ég alveg límd  við hana greyið mömmu mína fyrstu dagana. Sleppti ekki hendinni á henni ;) Gott að fá mömmu sína !

Svo er ég alveg að fýla einn skemtistað hérna í tætlur ! Hann heitir Che pasta og er salsabar. GEÐVEIKT gaman. Búin að fara 2 síðustu laugardaga. Fór fyrst með Sigrúnu, Lilly, Betty vinkonu Lillyar og mömmu hennar. Bara gaman. Dansað mikið. Svo síðasta laugardag fórum bara ég, Sigrún og Lilly. Svo auðvitað fer ég aftur næsta laugardag ! Ekki spurning !

Við erum ekki búin að stoppa síðan mamma og pabbi komu. Stanslaust stuð. Alltaf nóg að gera. Enda bara gaman að hafa nóg að gera. Ekki satt?

Svo styttist óðum í íslandið góða. Hlakka til að koma heim í kuldann. Sakna Íslands dáldið.

Jæja nenni ekki að hafa þetta lengra 1 Læt heyra í mér síðar. Þá kannski hef ég meira að segja. Hausinn á mér tæmist alltaf jafn óðum. Er með gallað minni ;)

Ciao

29. ágúst 2007 klukkan 00:44
Rakel Pálsdóttir
11 athugasemdir
18ágúst

Aloha eeeeeeee

Var einmitt að koma úr símanum rétt í þessu. Mamma hringdi í mig úr hólminum. Svaka partý. Svaraði í símann og fékk líka þennan fallega söng ! Allir ættingjarnir í hólminum að djamma. Væri meira en til í að vera þar núna þessa stundina! Eeeen ætla ekki að hugsa mikið um það. Það koma aðrir danskir dagar !

Ég er búin að vera að bralla ýmisslegt undan farna daga. Við fórum í bíó um daginn, ég, Sigrún, Leon, L'roy, Josh og einhver ein stelpa. Rosa gaman. Fórum síðan niðrá hale koa að gera ekki neitt ! heheh ! Svo kom líka þessi rigning og þetta rok og við héldum bara að þessi blessaði fellibylur væri að koma. En síðan kom hann bara ekki baun. Fengum ekki einu sinni rigningu.

Ég fór eitt föstudagskvöldið niðrá waikiki með Rakel og fjölsk. Horfðum á þessa flugeldasýningu og fengum okkur svo að borða :) Þessi líka myndarlegi strákur að þjóna okkur. Og John maðurinn hennar Rakel skrifaði á dollarann sem ég ætlaði að gefa í tips: "Rakel think u are cute !" hahaha. Fyndið !

Eitt kvöldið fórum ég og Stella með öðrum "kellingum" að gera okkur fínar. Laga neglurnar og svona. Fórum með Amy, Danielle og Lilly sem eru btw allar dagmömmur. Bara gaman ! Og auðvitað fékk maður sér starbucks á heimleiðinni. Nú svo var hún Lilly svo æðisleg að skutla mér í hárlenginu sem er 15 í burtu. Þannig ég er orðin algjör pæja ;D hehe

Fórum í keilu í gær alveg þvílíkt stuð og svo bíð ég bara eftir mömmu og pabba ;D;D

En lét nýjar myndir inn -allir að kíkja !

18. ágúst 2007 klukkan 22:45
Rakel Pálsdóttir
10 athugasemdir
10ágúst

jamm og jæja :)

Já verslunarmannahelgin hjá mér var æðisleg. Við fengum okkur hótelherbergi. Ég, Rakel, Stella og Sigrún. Fórum svo niður á barinn og fengum okkur í glas. Rosalegt stuð ! Dönsuðum mikið og horfðum á fulla fólkið dansa líka ! Bara fyndið :P Svo vorum við nú orðnar ansi þreyttar og sveittar þannig við ákváðum að skella okkur uppá hótelherbergi og spjalla. Vorum í ansi miklum svefngalsa. Eins og kom betur fram á blogginu hennar Rakelar þá voru sumir í meiri svefngalsa heldur en aðrir og kom uppúr ónefndri manneskju "hva engin klámmynd í þessu sjónvarpi??" hahah þetta var æðislegt moment :P Svo fórum við nú bara að sofa.
Daginn eftir vöknuðum við fyrir 12 og skelltum okkur út í sólina. Sleiktum sólina alveg í 3-4 tíma :) Bara nice. Kynntist einhverjum strák þarna sem var í fríi. Svo vorum við alveg uppgefnar á hitanum og fórum heim. Takk fyrir æðislega helgi !


Á mánudeginum tók Rakel mig í bíltúr. Alveg æðislegt. Hún keyrði með mig svona 1/4 af eyjunni, rosalega gama að sjá. Fórum á pali-lookout sem er svona útsýnispallur. Takk alveg æðislega fyrir mig Rakel - þetta var meiriháttar ;)

Svo fórum við út að borða á þriðjudaginn með fullt af krökkum. Því einn vinur hans Leons var að fara til Íraks í 6 mánuði. Og hann er að skjóta þar! Skrítið að vera í kringum fólk sem er að skjóta í írak ! Hann sýndi okkur myndir frá því hann var þar síðast og að sjá kofann sem hann býr í og náttúruna þarna! Þetta er hræðilegt :/

Núna eru bróðir hennar Rakelar, Bjarki kominn og kærastan hans Sigrún. Verða hérna í 3 vikur. Þau voru rosalega æðisleg og buðu mér að koma með sér á markaðinn. Og svo í gær buðu þau mér með a 3 tables ströndina :) Alveg æðislegt ! Takk fyrir mig!

Svo er bara að bíða eftir mömmu og pabba ! Hlakka til, þá byrjar ballið;)

NÝJAR MYNDIR

Ciao

10. ágúst 2007 klukkan 21:29
Rakel Pálsdóttir
6 athugasemdir
06ágúst

new pics

Nýjar myndir gott fólk - Get ekki bloggað strax. Ekki í stuði....
06. ágúst 2007 klukkan 00:27
Rakel Pálsdóttir
2 athugasemdir
01ágúst

loksins loksins :)

Vá þetta tók langan tíma! Þurfti að setja myndirnar 2x inn útaf þessari tölvu hérna ;) En núna gott fólk er ég byrjuð að punkta hjá mér fyrir hverja færslu þannig ég hef nóg að segja frá !

Fimmtudaginn 26.júlí: Vaknaði 10 mín í 10 eins og ALLTAF. Frekar skerí að vakna alltaf á nákvæmlega sama tíma. Kom niður og fékk mér að borða, var alveg þvílíkt úldin en þá sagði einn strákur sem er í daycare hjá Lilly vinkonu Stellu: "Who is this?" og Lilly alveg "This is Rakel, why?" og þá sagði hann "she's so pretty!". Hehe gaf mér lit í lífið þessi litli sæti strákur ! Krútt. Um kvöldið fórum við í mat til Ruth, vinkonu Stellu. Hún er frá Perú og eldar bara góðan mat!

Föstudagurinn 27.júlí: Fór að passa fyrir Rakel. Sótti Kristinu og Annett í fimleika og fórum svo heim. Fyndið. Ég er komin með æði fyrir parmesan osti sem ég strái yfir gjörsamlega allt ! Allir kalla þetta gubbuost því það er viðbjóðsleg fýla af þessu. Þegar ég kem heim til Rakel er gulur miða á eldhúshurðinni sem stendur "Rakel! Gubbuosturinn er inní ískáp". Hehe bara fyndið. Sá í fyrsta skipti þennan umtalað orm sem stingur. Hrykalega ljótur ! En mér líður mun betur að hafa séð hann þá veit ég hvernig þetta lítur út til vonar og vara. Rakel er æði ! Við náum rosalega vel saman og ef ég væri í heimsókn hjá henni, væri ég ábyggilega raddlaus því ég myndi tala svo mikið!

Um kvöldið fórum Sigrún út með Gabe vini hennar Sigrúnar. Hann lítur nákvæmlega út eins og strákurinn í Step up! Bara sætur. Fórum í herbergi til vin hans sem heitir Wes, eða hann heitir það reyndar ekki er bara kallaður það. Svo fórum við eitthvert út með fullt af krökkum alveg rosalega gaman að komast aðeins út svona. Þessi Wes er btw dreeeeeepfyndinn. Hann keyrði okkur ásamt fullum vini sínum á mcdonalds og tacobell og við sáum ekki neitt fyrir móðu ! Þetta var allt bara brjálaðislega fyndið og skemmtilegt!

Laugardagurinn 28. júlí: Fórum ég, Stella og Sigrún á wakiki beach. Á leiðinni fengum við okkur auðvitað Starbucks sem er kaffi. Gæti lifað á þessu. Fékk mér t.d. svoleiðis í kvöldmat einu sinni ! gooood svo gott. Allavega... og ég sá hund lítinn hund með sólgleraugu labba fram hjá mér ! Váááá´hvað þetta var fyndið og sætt ! Væri til í að eiga hund sem vildi vera með sólgleraugu. Niðrá Wakiki var brimbretta keppni. Ótrúlega flott. Einn stóð á haus á brimbretti. Snilli ! Æðislega gaman á wakiki fyrir utan hvað það var rosalega mikið af fólki. Svo kom ég auðvitað við í búðum. Fór inní eina búð sem heitir Rip curl og þar voru strákar sem spurðu mig hvaðan ég væri því þetta væri spes hreimur. Og ég sagðist vera frá íslandi. Og þá fóru þeir að gera grín að því að ísland heiti ísland því það er grænt og grænland heitir grænland því það er allt út í ís! hehe ! Um kvöldið fórum við svo í bíó ég og Sigrún.

Sunnudagurinn 29. júlí: Fórum ég, Stella og strákarnir á ströndina. Aldrei þessu vant þá var bara kalt ! Fórum heim eftir svona 45 mín.

Mánudagurinn 30.júlí: Hjálpa að passa hérna heima og fórum aftur í bíó, þetta skiptið ég, Sigrún og Leon. Leon sofnaði því þetta var líka þvílíkt leiðinleg mynd. Simpson the movie ! oooj

Þriðjudagurinn(í dag), 31.júlí: Hjálpaði ég Stellu að passa brjálaðingana. Fórum yfir til Danielle eins og við gerum alltaf seinni partinn og fórum í vatnsslag ! Kom heim rennandi blaut. Það er æðislegt að leika sér í vatni hérna. Það er svo heitt að það er svo rosalega nice að fá vatn á sig.

En ég held ég ætti að blogga oftar því þetta er allt of mikið sem ég skrifa !! ;) Ekki satt?

Var samt að láta inn nýjar myndir - endilega kíkja og svo vil ég sjá comment takk ;)

Rakel letingi kveður í bili

01. ágúst 2007 klukkan 04:03
Rakel Pálsdóttir
9 athugasemdir
25júlí

Alltaf nóg að gera...

Já það er sko alltaf nóg að gera hjá minni. Ætla núna að hafa færslunar mínar þannig að ég skrifa punkta. Ég er búin að fá mér litla minnisbók til að punkta niður fyrir bloggið. Því þegar það kemur að því að blogga þá man ég aldrei hvað ég ætla að skrifa. Reyndar er ég ekki alveg í stuðinu núna. Þið verðið að afsaka. Það dó bara eitthvað inní mér sem hefði átt að vera löngu horfið :/ Eeeeeeeeeeeeen ætlum nú ekki aðfara útí þá sálma aftur. Lífið heldur áfram. Því miður eru til falskar og óréttlátar manneskjur í þessu lífi.

Sunnudagskvöldið fórum ég, Sigrún og Leon niðrí bæ. Fórum niðrá Hale koa og tókum léttan dans. Það var verið að spila lag sem allir dansa við hérna. Svona dans sem allir kunna hér! Sigrún hoppaði inní hópinn AAALEIN og byrjaði að dansa ! Bara kúl. Myndavélin því miður batteríslaus ! Svo kíktum við niðrá wakiki og tókum sporið í sandinum. hehe bara gaman.

Svo í gærmorgun. Þá vakti Rakel mig kl 9 og tók mig með niðrá strönd. Bara flott strönd. Hún heitir three tables. Rosalega falleg. Það eru litlir fiskar ofaní og þeir eru bara að synda með okkur! ÆÐISLEGT.

 

Í gærkvöldi fórum við út að borða. Ég, Sigrún, Leon og Josh. Fórum á Denny's.

Svo það sem er framundan. Það er gisting á Halekoa hótelinu og djamm !!! Get ekki beðið ! 

Svo bara að hanga með þessum frábæru krökkum sem eru hérna. Ég er búin að kynnast alveg helling af fólki. Reyndar bara strákum. heheh en það er ekki verra ;) 

Svo ætla ég að segja ykkur hvað ég á frábæra mömmu. Hún styður svo rosalega vel við bakið á mér og er endalaust að hrósa mér ! Hún passar vel uppá mig og ég elska hana ógeðslega mikið, og alla fjölskylduna mína:*

Var að láta NÝJAR MYNDIR - endilega kíkja !

Heyrumst
RaKeLLo
 

25. júlí 2007 klukkan 23:25
Rakel Pálsdóttir
10 athugasemdir
19júlí

jæææææææææja

jæja :D Já það er langt síðan ég bloggaði. En það er eitt sem ég ætla að segja áður en ég segi sögur. Að ég ætla að hætta að blogga ef enginn kommentar hérna hjá mér. Er ekki nógu sátt með þetta. Ég veit að margir kíkja, og þeir sem kíkja verða að kvitta! Það bara gaman þegar fólk kvittar! Svo hana nú!
Ég er ekkert búin að vera að bralla neitt rosalega mikið undafarna daga. En við erum búin að fara út að borða og í bíó og svona. Rölta niðrí bæ og eitthvað. Ætla að deila hérna með ykkur svolitlu sem er einstakt hér.

*Það er eitt sem ég sé alltaf á leiðinni niðrí bæ. Það tekur alltaf svona 10 mín að keyra niðrá wakiki. Og það eru svona 200 ljósastaurar. Og við annan hvern ljósastaur eru svona körfur, verslunarkörfur með drasli í sem útigangsfólk á. ÞAÐ ER ALLT MORANDI Í HEIMILISLAUSU FÓLKI HÉR - ÞAÐ ER HRÆÐILEGT. 

*Það er hræðilegt líka, hvað allt er ódýrt. Ég gæti misst mig  hérna í búðunum og eitt milljónum! (ef ég ætti þær ! hehe). Kvíði bara fyrir að fara til ísl og þurfa að fara að versla þar, svo dýrt!

*Mamma mín er SVÖRT! Og það fer í taugarnar á mér því hún er á ÍSLANDI og ég er á HAWAII og hún er 3x brúnni en ég:( 

*Svo vil ég segja að ég sakna ykkar allra ógó mikið - Það er ekkert smá skrítið að vera svona langt í burtu frá öllum. Það lætur mann fatta hvern maður elskar og hvern manni þykir vænt um! Ég sé það núna að ég gæti ekki lifað án ykkar :*

Var að setja inn nýjar myndir!

Hafið það gott - og kvittiði, for gods sakes;)

 


19. júlí 2007 klukkan 00:34
Rakel Pálsdóttir
19 athugasemdir
09júlí

Nýjar myndir nýjar myndir !

Aloha !! NÝJAR MYNDIR NÝJAR MYNDIR ! Allir að kíkja á nýju myndirnar og kvitta svo í gestabók ;)

Allavega... það er allt gott að frétta héðan. Við erum búin að fara á Bellows sem er æðisleg strönd. Með stórum öldum. Og það var bara gaman. Fyndið, svo þegar maður lagst útaf þegar við komum heim, og lokaði augunum þá sá maður bara öldur og það snerist allt í hringi. Já... Svo var 4th of july. Þá fórum við yfir á pearl harbor völlinn og horfðum á þessa flottu flugeldasýningu. Fullt af fólki og bara gaman! Svo fórum við fullt af krökkum niðrí bæ að rölta. Svo mikið af heimilislausu fólki hérna þetta er hræðilegt ! Kom einn að okkur og byrjað að rífa kjaft. En við löbbuðum bara áfram og þóttumst ekki heyra í honum. Þetta er ekkert smá hættulegt. En já... það er alveg þvílíkt gaman hjá mér. Það eru allir að segja að ég ætti bara að vera hérna, og fara ekkert heim. hehe !
Nú svo fórum við í afmæli hjá Christinu, dóttur Rakelar. Það var haldið á lítilli sætri strönd hér á vellinum. Fengum að borða og svo köku... mmm takk fyrir mig Rakel ! hehe á föstudaginn síðasta fórum ég, Sigrún, Leon og Roshawn í bíó. Sáum 1408 ógeðsleg hryllingsmynd.

Í dag, sunnudag, fórum við og fengum okkur tattoo... ég og Stella. Fékk mér hawaiiska blómið. Ekkert smá flott. Stella fékk sér James nafnið. Oooo rómó! ;)
 
Og ég held það sé ekki meira að frétta í bili. Ég er bara að njóta þess í botn að vera til ! Svo æðislegt að vera hérna. Ég er að fýla þetta í tætlur, þrátt fyrir smá heimþrá um daginn þá held ég að ég sé öll að koma til! :D En ég reyni að koma með fleiri fréttir bráðum. Þangað til....

bæjó
09. júlí 2007 klukkan 10:19
Rakel Pálsdóttir
4 athugasemdir
02júlí

Mikið gaman mikið fjör

Já ! Það er sko mikið gaman mikið fjör hjá mér. Síðustu helgi fórum við niðrí bæ, ég, Stella og Sigrún. Byrjuðum á því að fá okkur að borða á hale koa hótelinu. Rosalega góður matur og svo fallegt þar eins og þið kannski sáuð á myndunum.  Fórum svo niðrá wakiki og horfðum á þessa líka flottu flugeldasýningu. Það var mikið um að vera! Það var húlla húlla sjó, eldsýning einhver og margt margt fleira! Svo röltum við aðeins um og svona svo gott veður. Fórum svo þar sem allar búðirnar eru. Alveg þvílíkt mikið af fólki og svo nice að geta bara labbað þarna um á kjól og opnum skóm. Það sem ég ELSKA við Hawaii er það að þurfa ekki að fara í jakka þegar maður fer út. Maður klæðir sig í eitthvað flott dress og labbar bara beint út ! hehe bara þægilegt. Eins og um daginn þá skutlaði ég Sigrúnu í vinnu einn morguninn. Og var ennþá í náttfötum, stuttbuxum og hlírabol semsagt. Og ég gat bara labbað beinstu leið út í bíl ! ;D heheh. Nóg um það. Við löbbuðum og löbbuðum. Sáum rosalega mikið áhugavert og skemmtilegt. Væri til í að fara þarna niðrí bæ á hverjum föstudegi. Nú á laugardeginum fórum við svo í vatnsleikjagarðinn! Alveg þvílíkt gaman! Ég sem hélt ég væri algjör skræfa en viti menn. Ég fór í ótrúlegustu rennibrautir ;) heheh ! 
Big Kahuna
Volcano Express
hehe jább! Þessi fannst mér skemmtilegust. Vorum þar alveg frá 11 um morgun til 5. Svo um kvöldið vorum við svo þreytt að við sofnuðum MJÖG snemma. Á sunnudeginum fórum við í kirkju. Það enntist ekki lengi því mér fannst svo leiðinlegt að ég fór að hugsa heim. Og fékk þessa ROSALEGU heimþrá :/ Og við fórum heim. hehe! Svo tekur bara önnur vika við. Ég fer að passa fyrir Rakel í kvöld. Fá smá pening.

Öfunda ykkur ekkert heima að fara á írskadaga í grenjandi rigningu ;) hehe!
Læt heyra í mér fljótt aftur

Mahalo

02. júlí 2007 klukkan 23:17
Rakel Pálsdóttir
4 athugasemdir
29júní

I'm missing you like craaaazy

Jééá ! Ég er komin með æði fyrir nokkrum lögum hérna ! Eitt er með hawaiiskum söngvara. Geeeðveikt... og svo önnur sem eiga totally eftir að minna mig á Hawaii. Eeeen nóg um það. Ég er búin að vera að bralla ýmisslegt ! Við fórum að skauta í gærkvöldi, ég, Sigrún og Leon. Ógeðslega gaman, eiginlega bara unglingar og geggjuð tónlist. DJ og alles. Það var greinlega eitthvað svona öskudagsdæmi. Allir klæddir í einhverjum búning. Hippar, 80's og fleira. Hehe bara fyndið. Svo fengum við okkur tacco bell að borða. BARA GOTT ! mmm... Svo í dag fórum við Sigrún í svona búð sem er frí. Fengum okkur línuskauta og fórum að línuskauta. Versta er að það er svo heitt hérna. Maður verður svo dasaður að línuskauta. Sáum svona vökvara, sem var að úða vatni á gras og við urðum að kæla okkur, svo við renndum okkur undir vatnið. Svo fórum við í sand-park með strákana. Alltof heitt, hehe. Þannig við 2 ákváðum bara að fara á ströndina. Ooo það er svo nice að liggja á ströndinni og að fara oní sjó. Gæti hangið þarna heilu vikurnar !
Jámm... svo er breytt plan. Á morgun, föstudag þá förum við niðrí bæ. Förum á wakiki og röltum eitthvert og svo er flugeldasýning. Það er alltaf flugeldasýning á föstudögum. Svo á laugardaginn förum við í vatnsleikjagarð ! Hlakka ekkert smá til. Ætlum að fara snemma, smyrja okkur nesti og vera þar allan daginn. Svo förum við einhvern tímann á hale koa !! Það er hótel - þar er sundlaug, strönd og flottur staður.

Bendi á nýjar myndir !

Adios amigo =D

29. júní 2007 klukkan 03:28
Rakel Pálsdóttir
6 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Rakel Pálsdóttir
  • Staður: Hawaii þangað til í september
  • Atvinna: Vann á leikskólanum Teigaseli og í Olís, en enginn vinna eins og er... þar sem ég er stödd á HAWAII
  • Hjúskaparstaða: Laus og liðug
  • Um mig: Opin, hress og þrjósk stelpa á 19 ári. Búsett á Akranesi, en á Hawaii frá júní - september - BARA GAMAN

Auglýsing

Gagnasafn